14.11.2008 | 14:07
Vikan
Hæhæ...
Ég er búinn að vera pretty busy busy í vikunni. Það er búið að vera óendalega mikið að gera í skólanum. Ritgerðir og próf. Á miðvikudaginn var ég í samfélagsfræðiprófi í "criminology" og "kosningakerfið í USA". Mér gekk mjög vel sem er gott af því kennararnir eiga að gefa okkur einkunnir um helgina.
Á miðvikudaginn um kvöldið komu Ari, Davíð og kærasta hans Davíðs í mat. Ari kom reyndar snemma og við vorum bara eitthvað að chilla. Pabbi bjó til rosalega góðan mat - japanskt hrísgrjónasalat og fiskur.
Á morgun á ég að keppa við Pedro Yang, ef þið þekkið hann ekki, þá er hann frá Guatemala og hann hefur keppt á ÓL í Aþenu.
Btw, 1 mánuður og 6 dagar þangað til að ég kem til íslands.
Laters.
Athugasemdir
ég á rosa fínar myndir af pedro;)
http://katrin.is/?t=album&aid=92
katrín atladóttir, 14.11.2008 kl. 14:45
gangi þér vel á móti pedro
Egill (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 15:22
takk egill. haha pedro og bob eru snillingar!!
Kári Gunnarsson, 14.11.2008 kl. 16:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.