25.1.2009 | 19:44
Oasis tónleikar
Krakkar mínir, nú ætla ég að segja ykkur sögu!
Í gær var ég að vinna í að skrifa ritgerð um Serbíu-Kosovo átökin þegar vinur minn hringdi í mig:
Hann sagði: Blessaður
Ég sagði: Sæll
Svo sagði hann að hann væri með einn auka miða á Oasis tónleikana sem áttu að vera í Forum á Österbro/Nörrebro/Frederiksberg? Ég er með svona smá princip - ég segi aldrei nei við ókeypis tónleikamiðum (það er reyndar ekki alveg satt. Mér var boðið á Chris Brown í kvöld, en vá ég nenni ekki að sjá hann.)
Við hittumst svo á metro-stöðinni rétt hjá húsinu og löbbuðum að röðinni. Það var kominn alveg frekar löng röð, þannig ég hugsaði að við myndum örugglega lenda einhver staðar aftast í salnum eða eitthvað. En svo allt í einu heyri ég einhvern hrópa "KAAAÚÚÚHRÍÍÍ" (svona bera Danir fram nafnið mitt), og ég sá að bekkjarsystir mín var fremst í röðinni. Þannig ég og vinur minn fórum bara til þeirra og þess vegna urðum við fremstir á tónleikunum. Og já btw, það voru svona 10.000 áhorfendur!
Athugasemdir
öss ég hefði sko farið á chris brown bara til að vonast eftir að rihanna kæmi líka:)
katrín atladóttir, 25.1.2009 kl. 20:54
eru þau saman? ég myndi samt heldur ekki nenna að sjá Rihanna!
Kári Gunnarsson, 25.1.2009 kl. 20:59
já sæææælllll ég trúi ekki að þú hafir sagt nei við chris brown tónleikum!!!! ohh þú ert nú meiri!!!!
Berta (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 00:40
guð minn... ég trúi ekki að þú hafir ekki nennt að sjá Chris Brown !:O ég er í sjokki, en hinir tónleikarnir hljóta að hafa verið skemmtilegir :)
Hanna (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 15:56
Maður neitar ekki Chris Brown tónleikum !! aldrei aldrei.. hefði flogið til dk bara til að sjá hann ef ég ætti fyrir því haha ;)
Salóme (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 13:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.