26.8.2008 | 19:19
Dagbók
Blellar,
Jeez hvað ég var lengi í skólanum í dag. Skólinn byrjaði klukkan átta eins og venjulega. Það er í alvöru pure evil að láta mann læra stærðfræði klukkan átta, en hey, ég er enn á lífi! Tíhí. Svo var ég líka í ensku, þýsku og jarðfræði og var svo loksins búinn klukkan fjögur.
Þegar ég kom heim fór ég beint útí körfu með the boys from the hood. Í kvöld fór ég út og keypti mér pizzu á Gastronomia og Faxe Kondi. Það eru komnar nýjar Faxe Kondi flöskur sem eru geðveikt girnilegar!
Góður dagur á morgun! Enska, leikfimi (körfubolti), Samfélagsfræði (við eigum að horfa á Bowling for Columbine). Hafið þið lesið um hvað gerðist í Columbine High School klukkan 11.00 20. apríl 1999? Það voru tveir strákar (17 og 18) sem fóru inn í skólann sinn með shotguns og skutu 12 nemendur og einn kennara! Scheisse segi ég bara!
Hey ég var að lesa um pólskan verktaka sem var ekki ánægður með stellinguna á húsinu sínu þannig hann ákvað að snúa því á hvolf, sem er örugglega mjög algengt í Póllandi eða hvað!?
Athugasemdir
ÉG ER STÚDENT Í STÆRÐFRÆÐI :D :D
Berta (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 15:57
ÉG ER STÚDENT Í EÐLISFRÆÐI, LIFFRÆÐI OG DRAMA :D :D
Kári Gunnarsson, 27.8.2008 kl. 16:42
Ég er stúdent í ensku, dönsku, þýsku, félagsfræði, sögu, eðlisfræði, efnafræði og jarðfræði :D :D
Pési (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 16:51
ég er ekki stúdent í neinu ... verð samt stúdent í félagsfræði í vor :D
Hanna (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.