Leita í fréttum mbl.is

Helgin

Jæja,

Það er bara búið að vera chill hjá mér núna um helgina! Á fimmtudaginn kom litla frænka mín, hún Sólrún Lára. Hún kom með tveggja lítra kristall plús og tvo djúp poka fyrir mig! Svo um kvöldið komu Íris frænka mín og foreldrar hennar í mat hjá okkur. Það var mjög huggulegt að sjá þau aftur!

Á föstudaginn hitti ég Hrefnu af því að hún var að flytja til DK og hún kom líka með kristall plús og djúpa fyrir mig! Um kvöldið klukkan svona 9 fór ég í eitthvað glatað skógarparty. Fyrst þurfti ég að bíða í 45 mínútur eftir lestinni og svo labbaði ég í svona 30 mínútur í skóginum en fann ekki bekkjarfélaga mína þannig ég fór bara strax heim!

Í dag fór familían til Jótlands þannig ég er einn heima í dag og á morgun. Ég er nú ekki búinn að gera mikið í dag. Þegar ég vaknaði fór út í körfu og í kvöld keypti ég mér pizzu á Gastronomia og fór heim að horfa á endursýningu frá körfuleikinum USA-Spánn, sem var frekar áhugaverður leikur þrátt fyrir að USA rústuðu Spánverjana! Það var eitt sem var svolítið fyndið: Það var 17 ára strákur frá Spáni sem "guardaði" Jason Kidd sem er 35 ára!

ricky rubio

 

 

 

 

 

 

 

Þegar leikurinn var búinn horfði ég á tvær bíómyndir. 21 og Brokeback Mountain. 21 var ótrúlega skemmtileg og sniðug og Brokeback Mountain var líka góð en aðeins langdregin!   

Hey, nokkrar fréttir:

- Það var einhver tónlistarmaður að fara í mál við John McCain. Ha! Gott á þig McCain!

- John McCain kom opinberlega út úr skápnum í The Oprah Winfrey Show!

- Eminem er að gefa út nýja plötu sem á að heita King Mathers.

- Ég er búinn með allt nammið og allt kristall plúsið!

- Nýi diskurinn hans Nas, Untitled, er awesome.

Góða nótt. :) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

auuu ég er lika einn heima um helgina ég borðaði lika pizzu en þessi pizza sem þu keyptir var hún frá staðnum sem þú sýndir mér og kristjáni umj páskana?

Egill (IP-tala skráð) 17.8.2008 kl. 03:13

2 Smámynd: Hrefna Rós Matthíasdóttir

Ég er ekki alveg að kaupa þetta að McCain hafi komið út úr skápnum í Opruh þætti....hvenær var það?  Hann er samt frekar gay, en ef þetta er satt þá mundi ég halda að það væri eitthvað "desperate scam" hjá Republikönum

Hrefna Rós Matthíasdóttir, 17.8.2008 kl. 08:45

3 Smámynd: Kári Gunnarsson

Já þetta er sami staðurinn! Hann er geðveikt góður! Og nei Hrefna, þetta var bara djók. hahaha... :P

Kári Gunnarsson, 17.8.2008 kl. 12:35

4 Smámynd: katrín atladóttir

ertu að djóóók ég ellllska gastranomia

ég borðaði svona 3x í viku á gastranomia á jagtvej þegar ég bjó í köben heh

svo kom ég í heimsókn ári seinna og gæinn mundi ennþá hvað ég panta;)

katrín atladóttir, 18.8.2008 kl. 00:15

5 Smámynd: Kári Gunnarsson

hahaha í alvöru? :P

Kári Gunnarsson, 18.8.2008 kl. 05:02

6 Smámynd: katrín atladóttir

heh já

er þitt gastronomia á jagtvej?

er ekki líka eitt svoleiðis í frederiksberg og svo annað nálægt kongens nytorv

hvar áttu heima?

ég bjó við nörrebros runddel

katrín atladóttir, 18.8.2008 kl. 12:37

7 Smámynd: Kári Gunnarsson

Ég á heima á Østerbro og mitt Gastronomia er á Østerbrogade sem er rétt hjá Jagtvej!

Kári Gunnarsson, 18.8.2008 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kári Gunnarsson
Kári Gunnarsson
Kári aka. mr cool! Ég blogga um allt mögulegt sniðugt sem mér dettur í hug!

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband