Leita í fréttum mbl.is

Heppinn vs Óheppinn

Eyo,

Í dag var ég óheppinn:

  1. Ég vaknaði klukkan 11.30 og fékk mér tvo pizzubita á meðan ég horfði á Scrubs. Síðan fór ég sturtu og allt það. Klukkan 13.00 skutlaði mamma mér út í Gentofte Badminton Klub. Í dag var ég nefnilega að að keppa á móti sem heitir Danish Junior Cup. Það er stórt alþjóðlegt mót. Klukkan 14.15 átti ég að keppa við Jordy Hilbink sem er númer 1 í Hollandi, og ég rústaði honum - þangað til að ég meiddist. Ég meiddist eiginlega á fimmtudaginn í náranum, en það versnaði í dag. Ég vann 21-15 í fyrstu lotunni en svo hreyfði ég mér einhvern veginn vitlaust og ég varð að hætta.
  2. Í dag þegar ég var að ná iPodinn minn í vasanum mínum datt síminn minn óvart út í leiðinni. Og nei hann datt ekki bara á gólfið. Hann datt ofan í glass með vatni í. What are the odds? Btw, hann virkar ekki. Það er vatn í skerminum og þannig.
Í dag var ég heppinn:
  1. Það var nammilicious lambalæri í matinn + steiktar kartöflur. Saussy!
  2. Ég fékk mér ís í desert.
  3. Ég er í fríi!!! ENGIN SKÓLI Í VIKU!

Ég held að ég þurfi að taka því rólega næstu dagana. Láta nárann batna. Ég er búinn að æfa geðveikt mikið síðustu vikurnar.

Áðan horfði ég á rosalega góða bíómynd. Rudy. Ég mæli með henni!

Peace out brothers and sisters.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hahah vinkona mín missti símann sinn líka einu sinni í kósettið ! en vá hvað ég væri til í viku frí... var að klára mitt haustfrí og skóli á morgun :/

Hanna (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 21:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kári Gunnarsson
Kári Gunnarsson
Kári aka. mr cool! Ég blogga um allt mögulegt sniðugt sem mér dettur í hug!

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband