Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Pros vs Cons

Blessuð,

Það er frí hjá mér þannig ég er bara búinn að liggja í rúminu mínu í leti. Svo er ég líka meiddur í náranum, og ég get eiginlega ekki hreyft vinstri fótinn minn. Þetta er samt ekki alvarlegt, ég þarf bara að slappa af í nokkra daga. Það er margt slæmt við að vera meiddur en hins vegar er líka margt sem er ágætt.

PROS:

  • Ég hef afsökun fyrir að liggja uppí rúmi og horfa á bíómyndir allan daginn.
  • Ég er búinn að horfa á svona 2 Scrubs seríur á 2 dögum.
  • Hmm já?
Cons:
  • Ég get ekki spilað badminton.
  • Ég átti að keppa í dag og á morgun, en ég kemst ekki.
  • Ég er eins og fatlaður þegar ég labba upp tröppur (ég labba bara upp með hægri).
  • Það er eins og sé verið að stinga hnífi inn í nárann á mér í hvert skipti sem ég hreyfi mér einhvern veginn vitlaust.
  • Ég gat ekki farið út í körfu þegar var gott veður í gær.

Í gær horfði ég á Almost Famous, sem er sjúklega góð mynd um "the rock'n'roll era"! Ég mæli með að allir sem hafa ekki séð hana horfi á hana í dag - eða á morgun ef þið eruð upptekin í dag að sjálfsögðu.

almost famous

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég er ennþá ekki búinn að ákveða hvaða mynd ég ætla að horfa á í kvöld, eruð þið með einhverjar tillögur?

"Rock and Roll - It's all happening!"

Peace out.


Heppinn vs Óheppinn

Eyo,

Í dag var ég óheppinn:

  1. Ég vaknaði klukkan 11.30 og fékk mér tvo pizzubita á meðan ég horfði á Scrubs. Síðan fór ég sturtu og allt það. Klukkan 13.00 skutlaði mamma mér út í Gentofte Badminton Klub. Í dag var ég nefnilega að að keppa á móti sem heitir Danish Junior Cup. Það er stórt alþjóðlegt mót. Klukkan 14.15 átti ég að keppa við Jordy Hilbink sem er númer 1 í Hollandi, og ég rústaði honum - þangað til að ég meiddist. Ég meiddist eiginlega á fimmtudaginn í náranum, en það versnaði í dag. Ég vann 21-15 í fyrstu lotunni en svo hreyfði ég mér einhvern veginn vitlaust og ég varð að hætta.
  2. Í dag þegar ég var að ná iPodinn minn í vasanum mínum datt síminn minn óvart út í leiðinni. Og nei hann datt ekki bara á gólfið. Hann datt ofan í glass með vatni í. What are the odds? Btw, hann virkar ekki. Það er vatn í skerminum og þannig.
Í dag var ég heppinn:
  1. Það var nammilicious lambalæri í matinn + steiktar kartöflur. Saussy!
  2. Ég fékk mér ís í desert.
  3. Ég er í fríi!!! ENGIN SKÓLI Í VIKU!

Ég held að ég þurfi að taka því rólega næstu dagana. Láta nárann batna. Ég er búinn að æfa geðveikt mikið síðustu vikurnar.

Áðan horfði ég á rosalega góða bíómynd. Rudy. Ég mæli með henni!

Peace out brothers and sisters.


Økonomisk krise og andet #¤%&/^*@#

Hey folkens,

I disse stunder er der noget af en global økonomisk krise - men især i mit hjemland, Island, går det ikke så godt. Problemet skyldes hovedsagelig, at der er mange banker og firmaer som har lånt store penge summer i udlandet, og nu hvor den islandske valuta er faldet så drastisk kan de ikke betale deres gæld. I hvert fald noget i den stil. Nu har den islandske regering så overtaget to af de største banker, og der er brug for støtte fra et andet land. Det bliver formentlig Russland. Men hvis vi ikke får økonomisk støtte vil landet gå bankerot!

Denne krise har ikke umiddelbart berørt mig personligt - INDTIL NU! Jeg skulle have været på Island om to uger for at spille en international turnering. Men i dag meddelte det islandske badminton forbund, at turneringen er aflyst fordi det ville være for dyrt at afholde den. Den islandske valuta er nemlig faldet med 100%, og pengepræmierne er i US dollars. Derfor ville det være dobbelt så dyrt som før.

Hvis jeg skal give min ærlige mening, så er denne krise noget værre BULLSHIT. Undskyld mit fransk. 

Peace out. 

Frown


Top 11 non-Hip-Hop lög!

Arite party people in the house. Ég hlusta sko ekki bara á hip hop. Hérna eru 11 uppáhalds non-hip-hop lögin mín:

11: Jose Gonzalez - Heartbeats

10: The Beatles - The Walrus

9: Rolling Stones - Sympathy for the Devil

8: Band of Horses - The Funeral

7: Cream - Sunshine of Your Love

6: Buffalo Springfield - For what it's Worth

5: Buena Vista Social Club - Chan Chan

4: Louis Armstrong - When You're Smiling

3: Simon & Garfunkel - Mrs. Robinson (The Graduate. Rosalega góð mynd með Dustin Hoffman og Anne Bancroft frá 1967)

2: Simple Minds - Don't You (Ég heyrði þetta lag í fyrsta skipti þegar ég horfði á The Breakfast Club)

1: Simon & Garfunkel - Sound of Silence (Þetta er my all time favourite!!! Ég heyrði þetta í fyrsta skipti þegar ég horfði á The Graduate)

Jæja. Þá er þetta komið. Nú ætla ég að fara að horfa á Scrubs eða eitthvað!

Hádídúdí.


Top 20 hip hop lög - EVER!

Aight,

Hérna eru 10 uppáhalds hip hop lögin mín:

20: Arrested Development - Everyday People

19: Outkast - Ms Jackson

18: Kanye West - Jesus Walks

17: Common - I Used to Love H.E.R

16: KRS-One - MC's Act Like They Don't Know

15: Warren G - Regulate

14: A Tribe Called Quest - Check the Rhime

13: Black Star - Definition

12: Digable Planets - Rebirth of Slick

11: Busta Rhymes - Woo Ha! Got You All In Check

10: De La Soul - Me, Myself and I

9: Slick Rick - Children's Story

8: Mos Def - Mathematics

7: Doug E Fresh & Slick Rick - The Show

6: Nas - Halftime

5: Dr. Dre ft. Snoop Dogg - Nothin But a G Thang

4: Jay-Z - Hard Knock Life

3: The Notorious BIG - Juicy

2: Run DMC ft. Aerosmith - Walk This Way

1: The Sugarhill Gang - Rapper's Delight

Okay, ég var að fatta að það er ekki hægt að gera svona lista. Það eru of mörg góð lög. Mig vantar Tupac, Young MC, LL Cool J, Ice Cube, Eric B & Rakim, MC Hammer, Missy Elliot, Public Enemy, Cypress Hill, House of Pain, Naughty By Nature, Eminem, Grandmaster Flash, Kurtis Blow, NWA, P Diddy, Bone Thug-N-Harmony, Afrika Bambaataa...

Næst ætla ég að gera top 20 rokk lista.

Peace out.


Seeing Sounds

As-Salāmu Alaykum,

Okay party people in the house, hvad så? Denne weekend har været noget af en hektisk affære, hvis i forstår hvad jeg mener. Vi har fem afleveringer til næste uge, hvilket er fuldstændig til grin. Det siger i hvert fald noget om manglende planlægning og koordination fra lærernes side. Men når jeg selv skal sige det er jeg noget af et geni, for jeg har allerede lavet toenhalv af de fem.

I fredags var jeg til galla. Først mødtes vi hjemme hos Andreas og spiste et vidunderligt måltid, hvorefter vi tog over på skolen til selve festen. Da vi kom skulle 3.g'erne danse lanciers - det var awesome. "Et skridt til højre og et skridt til venstre!".Whistling
Ja, bagefter gik jeg bare lidt rundt og snakkede med nogle peepz, som min homeboy Anton som lige er blevet student. Samtidig var der nogle der var på dansegulvet busting a move - men det er ikke lige mig. 

I lørdags aka i går lavede jeg lektier hele dagen så vidt jeg husker. Lige undtagen da jeg var ude og spille bball med Joe. Vi spillede en one-on-one, hvor jeg slagtede ham. Men Joe, kom igen, du gjorde dit bedste - det er jo et simpelt faktum at jeg har mad skillz.

Der er mange spændende ting på dagsordenen de næste par uger. Oh yeah. Næste weekend skal jeg spille badminton turnering i gentofte. Jeg spiller double med Merry fra 3.æ! Hvis jeg var jer, ville jeg sætte alle mine penge på os. Ugen efter det er der efterårsferie og der skal jeg lave INGENTING. Det eneste jeg skal er, at nyde ikke at lave noget - og så se Scrubs. To uger efter det skal jeg spille holdkamp om lørdagen, og så om søndagen skal jeg ind og se NAS!!! Få dage efter det skal jeg til Island, hvor jeg skal spille en international senior turnering, og chille. Dagen efter jeg kommer hjem skal jeg ind og se N*E*R*D!!! Ja det bliver en travl måned!

nerd

 

 

 

 

 

 

Hey, jeg har lige læst at der ved at blive lavet en film om Biggie (Notorious BIG). Det er en film der skal ses. Jeg skal også se den nye film med Bobby de Niro og Al Pal.

Peace out.

مع السلامة


Thug life

Greetings,

Það er margt búið að gerast síðan ég skrifaði síðasta bloggið mitt! Ég er búinn að vera á Íslandi, ég er búinn að vera lasinn, ég er búinn að hlusta svona 137 sinnum á lagið You með Atmosphere. You know, same old, same old! Síðan var fyrsta kappræða forsetaframbjóðendana þar sem McCain var rifinn í sundur. Svo var Google að markaðssetja nýja símann sinn - the gPhone!

Svo er líka margt nýtt og spennandi að gerast sko. 2 nóv er ég að fara á Nas tónleika og 10 nóv er ég að fara á N*E*R*D tónleika með my boys. Og fyrir þá sem þekkja ekki N*E*R*D þá er það bandið hans Pharrells.

Á morgun er ég að fara í galla veislu sem er svona ársball í skólanum. Allir í jakkafötum að sjálfsögðu! Fyrst borða ég með bekknum mínum heima hjá bekkjafélaga mínum. Við borðuðum líka heima hjá honum í fyrra og það var legendary.

Næstu helgi er ég að fara að keppa á alþjóðlegu u19 móti í DK. Danish Junior Cup. Ég er að spá í að vinna það bara. 

nas

____________________________________________________________

Kári segðu okkur sögu. Krakkar mínir, krakkar mínir þegar ég á Íslandi var: Já ég er nýbúinn að vera á Íslandi. Ég lenti seint á fimmtudagskvöldi og fór auðvitað beint að kaupa mér Djúp (á að beygja svona nafni?) og Þrista. Amma og afi sóttu mig. Það var rosa gott að sjá þau aftur og við spjölluðum um allt mögulegt í bílnum á leiðinni í bæinn. Þegar við vorum kominn heim fékk ég mér strax flatköku og hangikjöt. Af hverju er það ekki til í Danmörku - nei, í alvörunni? Svo burstaði ég og fór síðan niður í herbergið mitt að lesa Time og éta nammið mitt.

Á föstudaginn fór ég að heimsækja Gunnarafa og Sigrúnuömmu. Það var ofsalega gott að sjá þau aftur. Við vorum bara að spjalla og afi sýndi mér myndir. Svo klukkan svona 14 fór ég til augnlæknis af því ég er með eitthvað ofnæmi. Pfff. Ég varð náttúrulega að fara í sund á Íslandi þannig ég hringdi í Arnar frænda minn og við fórum í sund. Það var ekkert smá gott veður. NOT! En samt gaman. :D

Á laugardaginn fór ég að keppa í TBR. Það var awesome að sjá alla og mér gekk líka alveg sæmilega. Í tvenndarleik keppti ég með Sunnu og tvíliðaleik keppti ég með Birni. Um kvöldið fór ég í bíó með the gang. Við horfðum á Pineapple Express sem er alveg FÁRÁNLEGA fyndin mynd. Örugglega fyndnasta mynd sem hefur verið gerð árið 2008!

Á sunnudaginn var ég aftur að keppa og við Björn töpuðum í úrslitum fyrir Helga og Magga. Helgi varð þrefaldur. Tilhamingju með það! Þegar ég var búinn að keppa fór ég að kveðja Gunnarafa og Sigrúnuömmu og síðan fór ég að hitta TBR-krakkana. Við pöntuðum pizzu og horfðum á ótrúlega lélega mynd sem heitir Master of Disguise. Við horfðum líka á Dagvaktina sem er ööhh SNILLD!

4 hours and 30 minutes later...

Úff þá þurfti ég að vakna. En ég fór náttúrulega upp að borða hafragraut með afa og ömmu. Þá vaknaði ég - næstum því. Klukkan Scheisse hitti ég Björn í fríhöfninni og við keyptum okkur báðir geðveikt mikið nammi (ég kláraði mitt í gær).

Og já, þegar ég kom heim varð ég lasinn. Mig grunar að það hafi verið af því að ég labbaði tvisvar eða þrisvar útí tíuellefu á stuttbuxum og bol. Ég er samt eiginlega orðinn frískur.

Jæja, núna ætla ég að horfa á einn Scrubs þátt og fara svo að sofa.

Sjáumst í byrjun nóvember. Ég kem nebbla á Iceland SPRON. Hvernig ætli útlendingar segja Spron? 

Love, peace and respect to the police.

Btw, hafiði tekið eftir því hvað Will Smith segir oft "Aw, hell no!".


« Fyrri síða

Höfundur

Kári Gunnarsson
Kári Gunnarsson
Kári aka. mr cool! Ég blogga um allt mögulegt sniðugt sem mér dettur í hug!

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband